06 October 2005

Olá =)

hæhæ.. allt gott að frétta héðan, fór nú í íþróttir í morgun, alveg svakalega gaman, sérstaklega þar sem ég þurfti að láta þýða fyrir mig allan tímann.. vorum að spila badminton ég og einhverjar stelpur og kennarinn vildi nú endilega spila við mig afþví ég var búin að vinna stelpurnar sem voru að spila með mér, geðveikt stolt hehe.. en haldiði ekki að ég hafi grúttapað fyrir manninum.. össss, hehe.. svo vorum við að teygja á og ég var að gera einhverja fótateygju og stelpurnar horfðu bara á mig og byrjuðu svo að tala um hvað ég væri liðug! LOL.. ég sem er stirðasta manneskja sem ég þekki.. hehe það var bara fyndið, en svo þegar þær fóru að segja enskukennaranum okkar frá því þá fannst mér þetta nú full langt gengið.. hehe.
en ég verð nú samt að lýsa mömmunni hérna aðeins, hún er alveg ótrúleg. Skutlar mér í skólann á morgnana og nær í mig STRAX og skólinn er búinn, svo er alltaf hreingerningardagur á laugardögum og konan verður alveg tuskuóð, hún þrífur gólfin með klór, sópar og skúrar svalirnar (allar svalirnar) og liggur á fjórum fótum allan daginn að þrífa hvert og eitt einasta rykkorn sem fyrirfinnst í öllu húsinu, maður gerir sitt besta til að hjálpa en einhvernveginn finnst mér að maður sé bara fyrir eða henni finnist þetta bara svona svakalega gaman að hún vilji ekki hjálp. Svo er nátturulega alltaf eldað í hádeginu og kvöldin og alltaf er haft áhyggjur af því að ég borði ekki nóg, sem ég skil eiginlega ekki afþví að ég ét eins og svín og er búin að þyngjast um 3 kíló.. hehe.. ég verð bara spikfeit þegar ég kem heim.. :P

Fór nú í afmæli í gær hjá afanum, hann varð níræður, og veislan var frá hádegi til einhverntíma um kvöldið, við krakkarnir fórum heim um hálf10 leytið afþví að systkini mín þurftu að fara aftur til Aveiro, en foreldrarnir komu ekki heim fyrr en seint og um síðir.. hehe var soldið utanvelta í þeirri veislu þar sem ég er ekki alveg kominn inn í tungumálið ennþá .. :P en bróðir afa þeirra byrjaði nú að tala við mig.. og á ensku en ég komst fljótlega að því að allt sem hann kunni í ensku var 'How are you?' og 'Fine' því hann endurtók það aftur og aftur .. hehe
Svo þegar krakkarnir fóru þá skellti ég mér bara á kaffihús með Almeida, Blitzz og Digio þó að á endanum voru bara ég og Almeida eftir því hann bara gat ómögulega hætt að leggja kapal sem ég var að kenna honum, vorum úti til hálf2 .. svo þegar kaffihúsið var að loka buðu barþjónarnir okkur mat, einhvern skelfisk og ristað brauð, smakkaði skelfiskinn og OJJ.. þetta er eins og að tyggja sjó.. þannig að ég át bara ristaða brauðið í staðinn.. =) helv. fínt.. en það kvöldið var ágætt.. var í engu stuði til að hanga inni allt kvöldið.. það er ekki það skemmtilegasta í heimi, believe me.. nema fyrir þá sem hafa gaman af portúgölskum og brasilískum sápuóperum því það er það eina sem er í sjónvarpinu.. Alveg inni í þeim málum,, hmm nei..
Svo í næstu viku þá er Digio að fara til Lissabon í háskóla þannig að einu vinirnir sem ég á eftir hérna eru Sara, Almeida, Blitzz og Sofia,, hina alla hitti ég bara um helgar, vonandi fer maður að eignast fleiri vini, þekki alveg krakkana í bekknum mínum en ekki þannig að ég geti farið að hanga með þeim eitthvað af viti.
ass.. annars er nú ekki mikið að frétta, skólinn gengur sinn vanagang, ég skil ekki neitt í neinu og eyði heilu og hálfu tímunum í að reyna að þýða eitthvað í faginu sem ég er í hverju sinni en það gengur nú svona upp og ofan.. hehe portúgölsku tímarnir mínir ættu að fara að byrja (vonandi) en þeir áttu að byrja í síðustu viku, og svo í þessari viku, og svo í næstu viku og núna er það búið að breytast í þarnæstu viku.. :/ hmm.. held að kennarinn (sem er ólett) verði búin að eiga þegar tímarnir loksins byrja.. Mike (annar skiptinemi) er í Lissabon og hann á einmitt við sama vandamál að stríða, þar sem að Portúgalar eru ekki beint stundvísustu manneskjur í heimi þá kemur þetta okkur samt ekki svo mikið á óvart, er einmitt að fara að hitta skiptinemana sem eru mín megin á landinu, ekki núna um helgina heldur næstu,, þá verður haldið til Leiria og hitt alla,, vonast til að hitta einhvern íslending en get ómögulega munað hvar þeir eru, hehe..
en jamm annars er ekkert að frétta.. skrifa meira seinna.. xau! :)

29 September 2005

....

jæææja.. sit hérna ein heima að gera ekki neitt .. erum að fara til Benedita eftir smá að horfa á heimildarmynd um The Doors, 'foreldrar' mínir eru ennþá í Aveiro og 'systkini' mín koma ekki heim fyrr en á morgun.. þannig að það er mjög gaman hjá mér eða hitt þó.. get samt sofið út á morgun! ;) það eru ekki tímar hjá mér fyrr en klukkan 2 þannig að það verður bara gaman hjá mér. . og svo er nottla hljómsveit á Bocage á morgun þá verður djammað með 'systkinum' mínum hehe.. svo 14,15,16 október verður skellt sér til Leiria til að hitta alla hina skiptinemana .. verður voðalega gaman .. =) jæja ég er ekki alveg að nenna að blogga í augnablikinu .. ætla að reyna að taka fleiri myndir til að setja á netið .. er bara svo sjaldan með myndavélina.. hmm .. :P hehe jamm .. skrifa meira seinna .. :) þegar það gerist eitthvað frásagnarfært hérna .. hehe ..bæjjj

24 September 2005

...

ohh ég er svooo dugleg að blogga .. hmm .. hehe . . það er svo hrikalega lítið sem hægt er að segja frá.. breytti um fög í skólanum þannig að nú er ég ekki lengur á vísindabraut heldur tungumála og bókmenntabraut,, þannig að núna er ég í enskutímum.. sem þýðir að það er allavega eitt fag sem ég skil hvað kennarinn er að segja .. jeijjjj .. =) annars er voðalega lítið að frétta.. ég held að við 'systkinin' séum að fara til Lissabon á morgun að versla .. og ég sem er að vera blönk.. hmm .. hlakka samt til því mig dauðlangar að versla mér föt :)
fór á Bocage í gærkvöldi, það var hljómsveit sem spilaði bara lög sem ég þekkti.. það voru held ég tvö sem ég þekkti ekki og þau voru á portúgölsku hehe .. þeir spiluðu metallica, korn, linkin park, system of a down.. you name it skomm .. gjeggjað stuð þó að Catarina hefði nú getað skemmt sér betur .. henni drulluleiddist greyjinu. en jamm er bara að bíða eftir að hún sé búin í sturtu og þangað til að Blitz kemur og nær í okkur .. André ætlar að vera heima litli púberinn því hann er svo þreyttur .. hehe það verður gaman hja okkur því við erum að fara að skemmta okkur og Digio er að vinna á Bocage í kvöld þannig að hann getur ekki joinað .. hehe bara fyndið hvað honum leiddist í gær.. hann fílar svipaða tónlist og ég og greyjið þurfti að vera að vinna .. :P
Svo ætlar Catarina að fá sér kettling á morgun .. og fara með til Aveiro (þar sem hún fer í háskóla) og þau fara á morgun og þá er ég ein eftir hérna .. :/ hmm það verður fjör ..
eitt sem ég er ekki vön að sjá þegar ég geng inn í verslanir eru hvolpar og kettlingar í búrum til sölu .. algjörar rúsínur .. en ég er ekki vön að sjá sona .. :P hmm veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja skomm .. það er EKKERT annað að frétta héðan ., hehe.. ég skal reyna mitt besta að blogga aftur bráðlega .. =)

16 September 2005

hehe jahá

maðut ætti kannski að vera duglegri að blogga svona annað slagið hehe. þannig að það sé nú hægt að fylgjast með henni Evu sinni :) ekki mikið sem ég er búin að vera að brasa sem er vert að segja frá, fyrsta vikan í skólanum búin, er búin að kynnast krökkum en reyndar bra tveim svona almennilega og þeir tala báðir ágætis ensku og eru báðir í bekknum mínum, svo þekki ég einhverja vini þeirra .. hehe bara fjör hja mér.. og svo náttúrulega vini 'systkina' minna.. jebb svo skellir maður sér á Bocage í kvöld, like always en alltaf á föstudögum er hljómsveit og í kvöld er hljómsveit sem spilar metallica, linkin park og soleiðis .. get ekki beðið ;) eitt sem ég sakna við ísland, það er fiskur sem er flakaður og úrbeinaður, og ég er ekki fiskimanneskja.. hérna er hann bara vesgú heill fiskur á diskinn með augum og tilheyrandi.. ekki girnilegt.. þó að fiskurinn sé í lagi.. en jamm ekkert meira að segja eins og er .. ég skal reyna að blogga aftur eftir ekki of langan tíma .. hehe ... bæjjjj

12 September 2005

:))))))

tölvan mín er komin :) styllti hana meiraðsegja á íslenskt lyklaborð:P hehe.. vaknaði kl hálf9 í morgun, hálf8 að ykkar tíma til að fara upp í skóla en nei .. þá er kennarinn sem ég þarf að tala við ekki við þannig að ég þarf að fara aftur kl hálf2 sem þýðir að það var algjörlega tilgangslaust að vakna svona snemma .. :( en já get ekki sofnað þannig að ég er að spá í að fara bara að læra .. það er kominn tími til, er varla búin að hafa tíma til þess síðan ég kom ..

08 September 2005

:(

fae ekki tolvuna fyrr en a sunnudaginn.. tar sem ad vid forum ekkert fyrr en ta.. og eg tarf ad taka ut a hverjum einasta degi pening til ad vera med no fyrir tolvunni tar sem ad helvitis hamarkid a dag eru 200 evrur og eins og er vantar mig ennta 800 .. tannig ad eg tarf ad taka ut i dag og a morgun og hinn og a sunnudaginn og ta rett slepp eg.. hlakka samt ekkert sma til .. ta tarf eg ekki ad einoka tolvuna herna lengur tad er ekkert sma boggandi ad turfa alltaf ad bidja um leyfi og mer finnst tad svo leidinlegt utaf tvi ad eg tarf ad geta fyglst med skolanum heima . . sem er nu ekkert gjeggjad fjor skomm .. og tar fyrir utan er skolinn her ad byrja a tridjudaginn og afs er ekkert buid ad hringja og eg er ekki einu sinni skrad inn i skolann .. gjeggjad stud .. get ekki sagt ad mig hlakki mikid til ad byrja i skolanum tar sem ad eg tala ekki stakt ord i portugolsku.. sem er nu ekkert gamanmal midad vid hvad tad er litid af folki herna sem talar ensku .. en tad er nu eitt sem eg bara verd ad segja ykkur sem mer fannst gjeggjad fyndid i gaer .. vorum eitthvad ad runta bara i einhverjum bae rett herna hja og haldidi ekki ad bara a midri gangstett hafi bra verid girding og skilti sem stod a dyraklosett.. hef nu aldrei sed solleiss adur.. hehe .. og so er eitt sem tau eru med lika, tad eru sona rassavaskar hehe .. bara beint vid hlidina klosettinu .. tad er bra furdulegt.. hehe en jamm tau eru ad fara adhorfa a einhverja mynd tannig ad eg blogga bra seinna. . jebb .. spaejo..

07 September 2005

er ad fara ad kaupa tolvu:D

jaeja ta leyfdu mamma og pabbi mer ad kaupa mer ferdatolvu en nei tegar eg kem i budina taka tau ekki vid kortum og allir bankar lokadir .. tarf ad taka utur hradbanka og tar sem ad tad ma ekki taka nema eitthvad akvedid a dag ta tarf eg ad taka ut i dag og a morgun :( tannig ad eg fae ekki tolvuna fyrr en a morgun eda hinn .. gjeggjad stud.. forum ad skoda einhvern kastala i dag.. gjeggad flottur en nei gleymdi eg ta ekki myndavelinni heima tannig ad eg a engar myndir til ad syna ykkur .,. en tad er no af odrum hlutum ad sja .. :) tek bara myndir af teim .. en jamm aetla ekki ad vera ad einoka tolvuna hans lengur .. blogga aftur ur minni eigin tolvu (vonandi)

06 September 2005

jaeja ta er madur byrjadur ad blogga

klukkan er half3 ad nottu til herna i portugal.. liklegast half2 a islandi,, hehe .. sma timamunur.. er bara herna uppi i rumi med fartolvuna hans andre ad blogga i fyrsta sinn sidan eg kom hingad.. tau eru vodalega fin.. eg er med ser herbergi a efri haedinni,, hef haedina alveg utaf fyrir mig:) fjolskyldan er buin ad draga mig a eftir ser utum allt svo eg er buin ad vera voda upptekin, hehe .. hef vodalega litinn tima til ad vera med heimtra en tegar eg hef ekkert ad gera ta fer eg stundum ad hugsa heim og hvad eg sakna allra og ta kemur heimtrain eins og skot.. annars er vodalega litid ad fretta nema tad ad moskitoflugurnar og myflugurnar herna elska mig .. eg er med endalaust af bitum allsstadar og tad er ekkert sma otaegilegt.. en aetladi nu bara ad blogga sma hehe.. er ordin frekar treytt.. er ad vinna i tvi ad fa mommu og pabba til ad leyfa mer ad kaupa mer mina eigin ferdatolvu afti ad andre fer i haskola i naestu viku og tolvan med honum,, en tau eru med tradlaust net svo ad ta gaeti eg bloggad meira og fylgst betur med fjarkennslunni heima .. tannig ad eg vona tad besta um tad ad tau leyfi mer tad ;) en jamm er ad fara ad sofa svo eg vakni nu einhverntima a morgun hehe .. madur ma ekki vera latur fyrstu dagana hja nyju fj0lskyldunni og hun er stor .. tau bua 4 i tessu husi en foreldrar krakkanna eiga an alls grins 21 systkinabarn og 0ll familian byr herna i naesta husi eda i husinu a moti .. hehe svo madur er ad hitta fullt af fjolskyldumedlimum.. tau eru strax farin ad plana ferd til islands eftir ad eg fer heim hehe .. en jamm goda nott .. sakna ykkar krusidullurnar minar.. adeus.. :)